Langar þér að líða betur,
komast nær hjartanu þínu
og læra að elska þig?
Það er mín einlæga von
að hjálpa þér að blómstra
VELKOMIN/N
HVER ER ÉG?
Hæ, ég heiti Halla Ósk Heiðmarsdóttir.
Ég hef verið með kvíða síðan ég man eftir mér sem þróaðist út í þunglyndi og vanmátt eftir því sem árin liðu. Í leit minni af leiðum til að líða betur og sigrast á kvíðanum fór ég í gegnum ótal úrræði, hitti sérfræðinga og á einum tímapunkti leitaði ég aðstoðar á geðdeild. En það var ekki fyrr en ég kynntist þerapíunni lærðu að elska þig og Ósk sem að ég náði loks tökum á sjálfri mér. Með þerapíunni lærði ég að samþykkja mig og allar mínar hliðar, ég uppgötvaði að innra með mér bjó svo miklu meira en "bara kvíðinn" og að kvíði væri bara tilfinning en ekki eiginleiki sem að skilgreindi mig.
Í kjölfarið lærði ég að verða leiðbeinandi í þerapíunni svo ég gæti hjálpað fleirum að finna sinn innsta kjarna og uppgötva þessa mögnuðu manneskju innra með sér sem að bíður eftir að koma fram og blómstra!
Ég trúi því að hverri einustu manneskju sé ætlað að blómstra, nákvæmlega eins og hún er, það er mín einlæga ósk um að ég geti hjálpað þér.